Háskóli Íslands student.is

Félagsstofnun Stúdenta

Félagsstofnun Stúdenta

Hvað finnst þér best við íslenska sumarið?

Maddalena Tovazzi á 2. ári í ensku: Ætli það sé ekki hvað sumarið er bjart. Mér líkar líka vel við veðrið hérna, það er ekki of heitt.
Auður Kamma Einarsdóttir starfsmaður í Háskóla Íslands: Það er frekar hressandi veður hérna á Íslandi! Það er samt ansi gaman hvað sumarið er bjart, ég verð að segja það.
Freyr Björnsson á 3. ári í félagsfræði: Íslenska sumarið er svo passlegt.

Ætlar þú að kíkja við rannsóknarskýrslu ráðstefnu HÍ?

Eva Eiríksdóttir nemi í ferðamálafræði: Nei, er í prófum
Helga Ingibjörg Guðjónsdóttir nemi í ferðamálafræði: Nei því miður kemst ég ekki vegna prófum.
Juan Serrano mastersnemi í íslensku bókmenntafræði: Nei ég ætla ekki að fara, ég er of upptekin, en mér finnst þetta rosalega áhugavert efni.

Kaffistofur FS

Printer-friendly version

Gott á góðu verði
Meginmarkmið Kaffistofa stúdenta er að stuðla að heilbrigðu mataræði háskólastúdenta með því að bjóða fjölbreytt og gott vöruúrval á lágmarksverði.
Kaffistofur stúdenta eru staðsettar á 6 stöðum á háskólasvæðinu. Allar eiga það sameiginlegt að bjóða upp á hollan og næringarríkan kost fyrir námsmenn á viðráðanlegu verði. Reynt er að hafa vöruúrval sem mest og allar vörur ferskar.

Í desember 2007 opnaði FS sína stærstu veitingasölu til þessa, Hámu, í nýju Háskólatorgi. Þar er lögð áhersla á aukið vöruúrval auk þess sem heitur matur er í boði.

Afgreiðslutími í Hámu og á Kaffistofum stúdenta
Háma
mánudaga - föstudaga kl. 8 - 19, laugardagar kl. 9.30 - 16

Kaffistofur stúdenta
Askja
mánudaga - föstudaga kl. 8.30 - 15.30
Árnagarður
mánudaga - föstudaga kl. 9 - 15.30
Eirberg
mánudaga - föstudaga kl. 9 - 15.30
Háskólabíó
mánudaga - föstudaga kl. 8.35 - 15.30
Læknagarður
mánudaga - föstudaga kl. 9 - 15.30
Oddi
mánudaga - föstudaga kl. 8 - 17

Viðburðir

Maður vikunnar

Helgi Möller Hugbúnaðarsérfræðingur er maður vikunnar

Maður vikunnar

Vinnur við forritun á Uglunni