Háskóli Íslands student.is

Jafnrétti

Jafnrétti

Hvað finnst þér best við íslenska sumarið?

Maddalena Tovazzi á 2. ári í ensku: Ætli það sé ekki hvað sumarið er bjart. Mér líkar líka vel við veðrið hérna, það er ekki of heitt.
Auður Kamma Einarsdóttir starfsmaður í Háskóla Íslands: Það er frekar hressandi veður hérna á Íslandi! Það er samt ansi gaman hvað sumarið er bjart, ég verð að segja það.
Freyr Björnsson á 3. ári í félagsfræði: Íslenska sumarið er svo passlegt.

Ætlar þú að kíkja við rannsóknarskýrslu ráðstefnu HÍ?

Eva Eiríksdóttir nemi í ferðamálafræði: Nei, er í prófum
Helga Ingibjörg Guðjónsdóttir nemi í ferðamálafræði: Nei því miður kemst ég ekki vegna prófum.
Juan Serrano mastersnemi í íslensku bókmenntafræði: Nei ég ætla ekki að fara, ég er of upptekin, en mér finnst þetta rosalega áhugavert efni.

Jafnrétti - SHÍ

Printer-friendly version
Jafnréttisnefnd Stúdentaráðs sér um að standa vörð um jafnréttismál innan Háskóla Íslands og vekja athygli á því þegar pottur er brotinn í þeim málum. Samhliða jafnréttisnefnd er starfandi jafnréttisfulltrúi SHÍ sem starfar náið með nefndinni, hefur setu- og tillögurétt á fundum nefndarinnar. Nefndin stuðlar að því að allir stúdentar háskólans séu settir undir sama hatt, burtséð frá kyni, bakgrunni, aldri, einhvers konar fötlun eða öðru.
 
 
Jafnréttisnefnd reynir að veita Háskólanum aðhald og þrýsta á að jafnréttisáætlun HÍ í kynjajafnréttismálum sé framfylgt.
 
Nefndin gætir þess að umhverfi stúdenta hamli þeim ekki  með því að þrýsta á að merkingar og aðgengi fyrir nemendur með fötlun sé eins og best verði á kosið.
 
Formaður nefndarinnar á sæti í stjórn Greiningarsjóðs sem sér um að úthluta fjárhæð til styrktar nemendum HÍ með sértæk námsúrræði. Það er úthlutað úr sjóðnum á hverju misseri.
 
Í samráði við jafnréttisfulltrúa sér nefndin um skipulagningu á fyrirlestrum, kvikmyndasýningum og öðru sem vakið getur áhuga háskólastúdenta á jafnréttismálum í víðum skilningi.
 
Vekja athygli á jafnréttismálum, m.a. með skipulagningu lifandi bókasafns á tyllidögum.
 

Í jafnréttisnefnd veturinn 2008-2009 sitja:
Brynjar Smári Hermannsson, formaður (Röskvu): bsh2@hi.is
Þórhalla Rein Aðalgeirsdóttir (Röskvu): tha23@hi.is
Kristjana Pálsdóttir (Röskvu)
Atli Bjarki Kjartansson (Vöku)
Vilborg Einarsdóttir (Vöku): vie1@hi.is

 

Viðburðir

Maður vikunnar

Helgi Möller Hugbúnaðarsérfræðingur er maður vikunnar

Maður vikunnar

Vinnur við forritun á Uglunni