Háskóli Íslands student.is

Jafnrétti

Jafnrétti

Hvað finnst þér best við íslenska sumarið?

Maddalena Tovazzi á 2. ári í ensku: Ætli það sé ekki hvað sumarið er bjart. Mér líkar líka vel við veðrið hérna, það er ekki of heitt.
Auður Kamma Einarsdóttir starfsmaður í Háskóla Íslands: Það er frekar hressandi veður hérna á Íslandi! Það er samt ansi gaman hvað sumarið er bjart, ég verð að segja það.
Freyr Björnsson á 3. ári í félagsfræði: Íslenska sumarið er svo passlegt.

Ætlar þú að kíkja við rannsóknarskýrslu ráðstefnu HÍ?

Eva Eiríksdóttir nemi í ferðamálafræði: Nei, er í prófum
Helga Ingibjörg Guðjónsdóttir nemi í ferðamálafræði: Nei því miður kemst ég ekki vegna prófum.
Juan Serrano mastersnemi í íslensku bókmenntafræði: Nei ég ætla ekki að fara, ég er of upptekin, en mér finnst þetta rosalega áhugavert efni.

Printer-friendly version

Jafnrétti eykur lífsgæði




Jafnrétti er sanngirnismál fyrir öll samfélög þar sem það stuðlar að bættum lífsgæðum, betra samfélagi og blómlegri efnahag. Ekkert samfélag hefur efni á því að verða af mannauði kvenna; hæfni og dugnaði þarf að vera jafnt skipt meðal þegnanna annað þýðir beinlínis tap fyrir samfélagið. Það er jafnframt sanngjarnt og réttlátt að konur eigi sama aðgang og karlar að valda- og áhrifastöðum; og það má segja að jafnrétti kynjanna er forsenda frekari lýðræðisþróunar.
 
Í núgildandi lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla segir að jafnrétti skuli náð með því að gæta jafnréttissjónarmiða og vinna að kynjasamþættingu í stefnumótun og ákvörðunum á öllum sviðum samfélagsins. Markmið laganna er að koma á og viðhalda jafnrétti og jöfnum tækifærum kvenna og karla og jafna þannig stöðu kynjanna á öllum sviðum samfélagsins.

""

Viðburðir

Maður vikunnar

Helgi Möller Hugbúnaðarsérfræðingur er maður vikunnar

Maður vikunnar

Vinnur við forritun á Uglunni