
Það er fjöldi íslenskra afreksíþróttamanna sem heldur út í heim atvinnumennskunnar snemma á ferlinum og fær námið þá oft að sitja á hakanum. Aukið framboð á fjarnámi hefur nú gert fólki kleift að setjast aftur á skólabekk samhliða atvinnumennskunni. Student.is heyrði í Eyjamanninum Gunnari Heiðari Þorvaldssyni, sem fór snemma í atvinnumennsku og er nú sestur aftur á skólabekk eftir smá hlé.
Gunnar Heiðar Þorvaldsson fór út í atvinnumennsku til Svíþjóðar sumarið 2004 að spila fótbolta með Halmstads Bollklub. Þar var hann hann markahæsti maður deildarinnar og var keyptur til stórliðsins Hannover 96 í Þýskalandi. Hann hélt áfram að ferðast á milli landa og var núna síðast lánaður frá Esbjerg í Danmörku til 1. deildar liðsins Reading í Bretlandi, þar sem fyrir voru þrír íslendingar í herbúðum liðsins.
Gunnar sló öllu námi á frest fyrst til að byrja með en tók svo þá ákvörðun að „setjast“ á skólabekk aftur í haust. Student.is lék forvitni á að vita hvernig það gengi að vera í atvinnumennsku og stunda háskólanám með.
-Hvað varð til þess að þú ákvaðst að setjast á skólabekk aftur?
,,Það var auðveld ákvörðun. Ég var ekki að spila eins mikið og ég vildi og ákvað að nota tímann í það að byrja að læra aftur þannig að ég þyrfti ekki að velta mér of mikið uppúr ákvörðunum þjálfarans.
,,Þú þarft náttúrulega að vera mjög skipulagður ef þú ætlar að láta þetta ganga upp. Las stundum í sumum bókum/glósum þegar ég var í rútunni á leiðinni í útileiki."
-Hvernig gekk svo námið eftir nokkuð langa pásu frá skólabekknum? ,,Það gekk bara ágætlega en það var mjög skrýtið í fyrstu. Man þegar ég byrjaði fyrst að læra þá fann ég allt í einu brunalykt og hélt að það hafi kviknað í einhverju en þá áttaði ég mig á því að það var bara að bræða úr heilanum."
-Nú ertu kominn með fjölskyldu, boltinn kominn á fullt í Englandi og svo nám, er ekkert erfitt að láta þetta rúlla allt saman?
,,Eins og ég sagði áður þá skiptir skipulag gríðarlega miklu máli. Nú nýti ég tímann á meðan sonur minn er á leikskóla og svo þegar hann sofnar á kvöldin til þess að
læra."
Skrifað af mai10 mai10@hi.is, þann 16.03.10