Háskóli Íslands student.is

Blaða- og fréttamennska

Kvikmyndasýningar fyrir erlenda stúdenta

Blaða- og fréttamennska

Ætlar þú að taka hlut af námi þínu erlendis?

Spurning vikunnar Edda María Sveinsdóttir, 1. ári í lögfræði: Já, ég hef áhuga á að taka skiptiönn úti í meistaranáminu. Þá helst í Bandaríkjunum eða S-Evrópu.
Spurning vikunnar Védís Eva Guðmundsdóttir, 1. ári í lögfræði: Já, ég hef áhuga á að fara til Noregs eða Bandaríkjanna.
Spurning vikunnar Sigurður Freyr Ástþórsson, 1. ári í sagnfræði: Mig langar að fara til Bretlands eða Noregs ef gengið lagast.


Printer-friendly version

biosalur_askjaÞað eru ekki allir sem vita að annan hvorn fimmtudag klukkan hálfsjö eru kvikmyndasýningar fyrir erlenda stúdenta í Öskju. Ása Baldursdóttir nemi í hagnýtri menningarmiðlun sér um þessar sýningar.

Þetta byrjaði í fyrra en þá sýndi ég eingöngu íslenskar myndir. Ég talaði á undan hverri mynd um leikstjórann og íslenska kvikmyndagerð og lagði töluverða vinnu heima fyrir við að undirbúa það. Eftir áramót ákvað ég að sýna ekki eingöngu íslenskar kvikmyndir heldur líka erlendar en þemað á þessari önn eru heimildarkvikmyndir.

 

ESN (Erasmus Student Network) eru með fjölbreytta dagskrá fyrir erlenda nema og þau nálguðust mig af því þau vissu að ég væri kvikmyndanörd og hefði gaman af því að gera eitthvað svona í frítímanum," segir Ása. ,,Þetta er náttúrulega bara sjálfboðastarf en þau eru búin að vera almennileg á móti og bjóða mér t.d. á þorrablót og í jöklaferðir. Fyrst og fremst vildu þau fá einhvern sem hafði áhuga á þessu en svo átti ég líka eitthvað af íslenskum myndum í mínu einkasafni.

 

asa_i_oskjuKvöldið byrjar eins og ég sagði áður með því að ég sýni þeim mynd af leikstjóranum og segi frá honum og fleira en eftir myndina eru umræður þar sem fólk úr salnum getur tjáð upplifun sína eða hugmyndir en ég reyni að stýra þeim þannig að allir komist að. Allar myndirnar eru með enskum texta, umræðurnar fara fram á ensku og kynningin líka

Það getur verið gaman fyrir skiptinemana að sjá þessar íslensku myndir, þær eru að vísu einhverjar á vídeóleigunum en erlendir stúdentar eru kannski ekkert mikið að leigja þær og þetta er bara svona kjörið tækifæri til að sjá íslenskar myndir. Ég fæ líka tölvupósta þar sem alls konar hugmyndir eru viðraðar og óskir um myndir lagðar fram."

 

Síðasta fimmtudag var myndin Draumalandið eftir Andra Snæ Magnason sýnd en á heimasíðu ESN er hægt að nálgast atburði sem félagið stendur fyrir í framtíðinni.

Share/Save

Viðburðir

« Mars 2010 »
SMÞMFFL
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031