Háskóli Íslands student.is

Blaða- og fréttamennska

Blaða- og fréttamennska

Hvað finnst þér best við íslenska sumarið?

Maddalena Tovazzi á 2. ári í ensku: Ætli það sé ekki hvað sumarið er bjart. Mér líkar líka vel við veðrið hérna, það er ekki of heitt.
Auður Kamma Einarsdóttir starfsmaður í Háskóla Íslands: Það er frekar hressandi veður hérna á Íslandi! Það er samt ansi gaman hvað sumarið er bjart, ég verð að segja það.
Freyr Björnsson á 3. ári í félagsfræði: Íslenska sumarið er svo passlegt.

Ætlar þú að kíkja við rannsóknarskýrslu ráðstefnu HÍ?

Eva Eiríksdóttir nemi í ferðamálafræði: Nei, er í prófum
Helga Ingibjörg Guðjónsdóttir nemi í ferðamálafræði: Nei því miður kemst ég ekki vegna prófum.
Juan Serrano mastersnemi í íslensku bókmenntafræði: Nei ég ætla ekki að fara, ég er of upptekin, en mér finnst þetta rosalega áhugavert efni.

Printer-friendly version

Efnafræði fyrir umhverfið, læknavísindin og þjóðarhag

Efnís 2009Efnafræði nýtt til beingræðslu, aldursgreiningar á fornleifum og förgunar kolefnis. Þetta er hluti af þeim hugmyndum og verkefnum sem kynnt voru fyrir gestum árlegrar ráðstefnu Efnafræðifélags Íslands á Hótel Loftleiðum sl. laugardag.

 

Að þessu sinni var þema ráðstefnunnar Efnafræði og nýsköpun" og þrír meginflokkar fyrirlestra: Líf- og heilsutækni, Efnafræði og efnatækni og Græn efnafræði, en hátt á annan tug fyrirlestra fóru fram á þessari fimmtu ráðstefnu félagsins.

 

Gissur Örlygsson

Gissur Örlygsson, efnafræðingur, hélt fyrirlestur um tilraunir á vegum Genís og Nýsköpunarmiðstöðvar til að nota kítínafleiður og kalsíumfosföt til beingræðslu. Enn er verið að þróa blöndurnar og er nákvæmnisverk að hitta á rétta stærð af skömmtum svo ekki verði ofvöxtur í beinunum en tilraunir á dýrabeinum ganga þó að flestu leyti vel. Þess er þó langt að bíða að hægt verði að hefja tilraunir á slíkri beingræðslu í mönnum.

 

Aldursforseti ráðstefnunnar, Páll Theódórsson frá Raunvísindastofnun Háskóla Íslands sagði frá nýlegri aðferð við að aldursgreina lífrænar mannvistarleifar s.s. viðarkol og dýrabein, en í kjölfar hennar hafa komið fram vísbendingar um að landnám Íslands sé 200 árum Páll Theódórssoneldra en áður var talið.

 

Kerfið sem hingað til hefur verið notað við þessa greiningu, svokölluð kolefni-14 aldursgreining, vegur 1000 kíló og kostar 27 milljónir. Páll skýrði frá  því að Raunvísindastofnun hafi hannað og prófað einfaldara kerfi sem vegi einungis 30 kíló og geti kostað undir hálfri milljón í framleiðslu. Vonir standa til að vegna yfirburðakosta kerfisins, sem nefnist ICELS, verði hægt að selja þessi tæki erlendum rannsóknarstofum og enn fremur að skila góðum hagnaði af aldursgreiningum hérlendis fyrir erlenda vísindamenn.

 

Edda Sif Aradóttir

Í flokknum Græn efnafræði hélt doktorsnemi við HÍ, Edda Sif Aradóttir, fyrirlestur um mismunandi leiðir til að fanga og farga kolefni, þ.e. að farga því í setlög eða sjó eða binda það í steindir og lífmassa. Lokaverkefni Eddu tengist bindingu í steindir, þ.e. hermir niðurdælingu kolefnis í basalt. Það er jafnframt hluti af alþjóðlega verkefninu CarbFix en í tengslum við það mun tilraunaniðurdæling á kolefni í basalt hefjast á Hellisheiði síðar í vetur.

 

Ef vel tekst til má búast við að aðferðin verði notuð hér á landi til að binda kolefnisútblástur frá jarðhitavirkjunum og jafnvel annarri stóriðju. Einnig myndu niðurstöðurnar nýtast annars staðar þar sem basalthraunlög eru algeng víða um heim.

 

Efnafræðifélag ÍslandsHáskólanemar, prófessorar og fyrirtæki kynntu rannsóknir, vörur, nýungar og annað á veggspjöldum í kaffihléi ráðstefnunnar og var þar margt fróðlegt að sjá. Ráðstefnunni lauk með árshátíð Efnafræðifélagsins á Hótel Loftleiðum um kvöldið.

""

Viðburðir

Maður vikunnar

Helgi Möller Hugbúnaðarsérfræðingur er maður vikunnar

Maður vikunnar

Vinnur við forritun á Uglunni