Háskóli Íslands student.is

Stúdent.is

Stúdent.is

Hvernig leggst komandi skólaár í þig?

Brynjar Karl Karlsson, nemi á 1. ári í vélaverkfræði: Mjög vel. Þetta er spennandi.

Súsanna Gottsveinsdóttir, nemi á 3. ári í heimsspeki og bókmenntafræði: Rosalega vel.

Örn Erlendsson, nemi á 2. ári í umhverfis- og byggingaverkfræði: Bara rosalega vel.

Hvernig leggst komandi skólaár í þig?

Kati Temonen, skiptinemi í stjórnmálafræði: Mjög vel, ég er mjög spennt.

Óskar Smárason, nemi á 1. ári í vélaverkfræði: Bara þokkalega.

Sunna Þrastardóttir, nemi á 2. ári í heimsspeki: Bara mjög vel. Líst vel á þetta.


  • Góð stemning á tónleikum Hjálma
    Vinsamlegast setja ALT texta streng hér.

    Troðfullt var og mikil stemning á tónleikum Hjálma á Háskólatorgi í dag. Tónleikarnir voru partur af dagskrá nýnemadaga Háskóla Íslands og voru í boði Félagsstofnunar Stúdenta. Greinilegt var að nýnemar, sem og aðrir nemar og starfsfólk HÍ, kunnu vel að meta viðburðinn og var mikil gleði yfir mannskapnum og hljómsveitinni vel fagnað að lokum.

    view
  • Stórtónleikar með Hjálmum á Háskólatorgi
    Vinsamlegast setja ALT texta streng hér.

    Í dag kl. 16.30 verða stórtónleikar á Háskólatorgi með piltahljómsveitinni Hjálmum. Tónleikarnir eru í tilefni Nýnemadaga Háskóla Íslands og eru í boði í Félagsstofnunar Stúdenta, helsta bakjarli stúdenta Háskóla Íslands.

     

    Komum, sjáum og fögnum með Hjálmum kl. 16.30 á Háskólatorgi.

    view
  • Fótboltamót og spurningakeppni
    Vinsamlegast setja ALT texta streng hér.

    Nú er frestur runninn út til að skrá sig til leiks í fótboltamóti og spurningakeppni SHÍ og liggur því leikjadagskráin loksins fyrir. Riðlakeppni fer fram í báðum mótum og er svo dregið út í úrslit þegar keppni lýkur á morgun (fimmtudag) Á leikjaplaninu er nákvæm tímasetning á því hvenær leikir og viðureignir hefjast, þess vegna er mjög mikilvægt öll lið mæti tímalega til leiks. Þetta er stíft plan þannig ef lið mæta of seint í leiki að þá tapa þau leiknum. Spurningakeppnin fer fram í fundarherbergum 300 og 301 á 3.hæð á Háskólatogi en fótboltmótið er á sínum stað fyrir framan Aðalbygginu.

    view
  • HÍ bregst við kynferðisafbrotum í kirkjunni
    Vinsamlegast setja ALT texta streng hér.

    ,,Þetta er beint viðbragð og skipulagt með hraði,” sagði Ingibjörg María Gísladóttir, doktorsnemi í guðfræðilegri siðfræði  um fyrirlestraröð á vegum Guðfræði- og trúarbragðafræðideildar og Rannsóknastofu í kvenna- og kynjafræðum við Háskóla Íslands  um kynferðisafbrot og kirkjuna.  Þetta var þriðji fyrirlesturinn af fimm. 

    view
  • Nýtt skólaár hafið í Háskóla Íslands
    University of Iceland

    Nú er skólaárið 2010-2011 formlega hafið í Háskóla Íslands. Nýir nemendur eru velkomnir og háskólinn býður þeim að taka þátt í nýnemadagskrá sem stendur til 3. september.

    Á þessu skólaári verður Háskóli Íslands hundrað ára, en hann  var stofnaður 17. júní 1911.  Þá voru 45 nemendur skráðir til náms og þar af einungis einn kvenmaður. Í dag eru næstum því 15,000 nemendur skráðir í nám á fimm fræðasviðum og 25 deildum í grunn- og framhaldsnámi.

    view
  • Stúdentaráð blæs til sóknar
    Vinsamlegast setja ALT texta streng hér.

    Stúdentaráð hefur á morgun herferð sem beinist gegn yfirvofandi niðurskurði í Háskóla Íslands og opnar formlega vefsíðuna Verjummenntun.is. Jens Fjalar Skaptason, formaður Stúdentaráðs segir vefsíðuna fela í sér gagnrýni á háskólayfirvöld og mennta- og menningarmálaráðuneytið. Hún sé einnig upplýsingaveita fyrir nemendur og almenning um breytingarnar sem fyrirhugaður niðurskurður í Háskóla Íslands hafi í för með sér.

    view
  • Student.is - lifandi veftorg fyrir stúdenta
    Vinsamlegast setja ALT texta streng hér.

    Student.is er samskiptatorg nemenda og kennara við Háskóla Íslands á vefnum. Þar er lögð er áhersla á ferskar fréttir úr háskólalífinu, viðtöl við nemendur og kennara auk þess sem uppákomum opg málstofum eru gerð góð skil bæði í útvarps-og sjónvarpsfréttum. 

    view
  • Mentorverkefnið Vinátta
    Vinsamlegast setja ALT texta streng hér.

    Mentorverkefnið Vinátta  Fél.413G.

    Spennandi heilsársnámskeið við HÍ skólaárið 2010-2011

     

    Vettvangsnám – utan skólastofu

     

    Hefur þú áhuga á að vinna með börnum, vera leiðbeinandi og fyrirmynd sem aðstoðar yngri, óreyndari aðila við að víkka sjóndeildarhringinn?

     

    Þá er mentorverkefnið Vinátta gullið tækifæri fyrir þig!

       

     

    view
  • Hugmyndasmiðja 2010
    Vinsamlegast setja ALT texta streng hér.

    Í september mun Hugmyndahús háskólanna hleypa af stokkunum  Hugmyndasmiðjunni 2010 fyrir frumkvöðla sem ganga með hugmynd í maganum eða eru komnir skammt á veg og vilja koma henni í framkvæmd. Hér verður spyrnt saman skapandi greinum, tækni, vísindum og viðskiptum því allir eru velkomnir. í Hugmyndasmiðjunni vinna þátttakendur að því að ramma inn sína hugmynd og í lok smiðjunnar eiga þeir að vera í stakk búnir til að hefja vinnslu viðskiptaáætlunar.

    view
  • Hjólað til styrktar krabbameinsrannsókna
    Vinsamlegast setja ALT texta streng hér.

    Okkar leið – allra málefni

     

    Alissa R. Vilmundardóttir lagði nýlega af stað í hjólaferð í kringum landið til að kynna og styrkja Rannsóknastofu í krabbameinsfræðum undir kjörorðinu Okkar leið – allra málefni. Ferðin hefur verið í undirbúningi síðustu 6 mánuði og upphaflega voru þær tvær, en ferðafélagi Alissu hætti við ferðina og því fer hún ein um landið. Verndari söfnunarinnar er Vigdís Finnbogadóttir, fyrrum forseti Íslands.

    view
Syndicate content

Maður vikunnar

Helgi Möller Hugbúnaðarsér-fræðingur er maður vikunnar

Heillandi rannsóknarstörf

Þau Sara Sigurbjörnsdóttir líffræðingur og Marteinn Þór Snæbjö...