Háskóli Íslands student.is

Félagsstofnun Stúdenta

Félagsstofnun Stúdenta

Hvað finnst þér best við íslenska sumarið?

Maddalena Tovazzi á 2. ári í ensku: Ætli það sé ekki hvað sumarið er bjart. Mér líkar líka vel við veðrið hérna, það er ekki of heitt.
Auður Kamma Einarsdóttir starfsmaður í Háskóla Íslands: Það er frekar hressandi veður hérna á Íslandi! Það er samt ansi gaman hvað sumarið er bjart, ég verð að segja það.
Freyr Björnsson á 3. ári í félagsfræði: Íslenska sumarið er svo passlegt.

Ætlar þú að kíkja við rannsóknarskýrslu ráðstefnu HÍ?

Eva Eiríksdóttir nemi í ferðamálafræði: Nei, er í prófum
Helga Ingibjörg Guðjónsdóttir nemi í ferðamálafræði: Nei því miður kemst ég ekki vegna prófum.
Juan Serrano mastersnemi í íslensku bókmenntafræði: Nei ég ætla ekki að fara, ég er of upptekin, en mér finnst þetta rosalega áhugavert efni.

Leikskólar FS

Printer-friendly version

mynd LeóStúdentabörn eru í góðum höndum

Félagsstofnun stúdenta rekur þrjá leikskóla

  • Sólgarður, Eggertsgötu 8, er þriggja deilda leikskóli,fyrir börn á aldrinum sex mánaða til tveggja ára. Hann er staðsettur á stúdentagarðinum Vetrargarði og þar er rými fyrir 51 barn í heilsdagsvistun. Sótt er um vistun á Sólgarði í gegnum síma eða tölvupóst. Skólinn er eingöngu fyrir börn stúdenta við HÍ en nemendur við KHÍ geta sótt um frá og með 1. júlí þegar skólarnir sameinast.
  • Leikskólastjóri á Sólgarði er Sólveig Gunnarsdóttir.
  • Síminn er 590 4900
  • netfang solgardur@fs.is.
  • Mánagarður, Eggertsgötu 34, er þriggja deilda leikskóli fyrir börn á aldrinum eins árs til sex ára. Hann er staðsettur í Ásgarðahverfinu og eru þar 64 heilsdagsrými. Mánagarður er í eigu Reykjavíkurborgar og Félagsstofnunar stúdenta og geta allir sem búsettir eru í Reykjavík sótt þar um. Félagsstofnun stúdenta ber ábyrgð á rekstri en sótt er um innritun hjá þjónustumiðstöð vesturbæjar, Vesturgarði í síma 411-1700. Vefsíðan er www.leikskolar.is.
  • Leikgarður, Eggertsgötu 14, er þriggja deilda leikskóli fyrir börn á aldrinum 6 mánaða til tveggja ára. Hann er staðsettur í Ásgarðahverfinu. Sótt er um vistun í síma 551 8560 eða með tölvupósti leikgardur@fs.is. Skólinn er eingöngu fyrir börn stúdenta við HÍ en nemendur við KHÍ geta sótt um frá og með 1. júlí þegar skólarnir sameinast.

Viðburðir

Maður vikunnar

Helgi Möller Hugbúnaðarsérfræðingur er maður vikunnar

Maður vikunnar

Vinnur við forritun á Uglunni