Háskóli Íslands student.is

Stúdent.is

Stúdent.is

Hvað finnst þér best við íslenska sumarið?

Maddalena Tovazzi á 2. ári í ensku: Ætli það sé ekki hvað sumarið er bjart. Mér líkar líka vel við veðrið hérna, það er ekki of heitt.
Auður Kamma Einarsdóttir starfsmaður í Háskóla Íslands: Það er frekar hressandi veður hérna á Íslandi! Það er samt ansi gaman hvað sumarið er bjart, ég verð að segja það.
Freyr Björnsson á 3. ári í félagsfræði: Íslenska sumarið er svo passlegt.

Ætlar þú að kíkja við rannsóknarskýrslu ráðstefnu HÍ?

Eva Eiríksdóttir nemi í ferðamálafræði: Nei, er í prófum
Helga Ingibjörg Guðjónsdóttir nemi í ferðamálafræði: Nei því miður kemst ég ekki vegna prófum.
Juan Serrano mastersnemi í íslensku bókmenntafræði: Nei ég ætla ekki að fara, ég er of upptekin, en mér finnst þetta rosalega áhugavert efni.

Get Rid of Yourself

Printer-friendly version
16 Mar 2010 19:30

Öskra! – hreyfing byltingarsinnaðra stúdenta, sýnir róttækar kvikmyndir um andspyrnu fólks gegn þeim öflum sem standa fyrir ofbeldi og algjörri stjórnun á mannlegu samfélagi, eyðileggingu plánetunnar, stríðum, kúgun og ójöfnuði.

Sýningarnar fara fram í stofu 101 í byggingunni Odda, Háskóla Íslands og hefjast kl. 19:30.

 

Þriðjudaginn 16.mars er sýnd Get rid of yourself

Innsýn inn í stofnanalausa andstöðu án persónueinkenna sem hafnar ríkjandi stjórnmálum.

 

Án þess að einblína á forritaða tímaröð atburða og átaka eru óeirðirnar í Genoa 2001 notaðar sem bakgrunnur til að skapa sýn inn í sameiginlega upplifun á aðgerðum, hugsunum og rými. Útfrá aðferðum svartblokkarinnar (The Black Bloc) og orðum hinna nafnlausu lýsir myndin yfir eigin útlegð úr pólitísku rófi. Þetta eru stjórnmál án viðfangsefnis.

Viðburðir

Maður vikunnar

Helgi Möller Hugbúnaðarsérfræðingur er maður vikunnar

Maður vikunnar

Vinnur við forritun á Uglunni