Háskóli Íslands student.is

Stúdentaráð

Stúdentaráð

Hvað finnst þér best við íslenska sumarið?

Maddalena Tovazzi á 2. ári í ensku: Ætli það sé ekki hvað sumarið er bjart. Mér líkar líka vel við veðrið hérna, það er ekki of heitt.
Auður Kamma Einarsdóttir starfsmaður í Háskóla Íslands: Það er frekar hressandi veður hérna á Íslandi! Það er samt ansi gaman hvað sumarið er bjart, ég verð að segja það.
Freyr Björnsson á 3. ári í félagsfræði: Íslenska sumarið er svo passlegt.

Ætlar þú að kíkja við rannsóknarskýrslu ráðstefnu HÍ?

Eva Eiríksdóttir nemi í ferðamálafræði: Nei, er í prófum
Helga Ingibjörg Guðjónsdóttir nemi í ferðamálafræði: Nei því miður kemst ég ekki vegna prófum.
Juan Serrano mastersnemi í íslensku bókmenntafræði: Nei ég ætla ekki að fara, ég er of upptekin, en mér finnst þetta rosalega áhugavert efni.

Frítt í strætó?

Printer-friendly version

Stúdentaráð Háskóla Íslands stendur nú í baráttu fyrir gjaldfrjálsum strætókortum næsta skólaár en miklar líkur standa til þess að kortin verði niðurfelld. Fulltrúar ráðsins hafa fundað með fulltrúum borgarinnar og Strætó og hafa nú sent erindi á borgarstjórnina, ýmsa ráðherra og samgöngunefnd Alþingis svo fátt eitt sé nefnt.Um þessar mundir stendur yfir skoðanakönnun um gjaldfrjáls strætókort sem ætlað er að meta hversu margir námsmenn myndu raunverulega nýta sér þjónustuna. Við bendum öllum stúdentum á að taka þátt en vefslóð á könnunina er eftirfarandi:http://FreeOnlineSurveys.com/rendersurvey.asp?sid=zojw7ow4u14qitp601532

 

Um baráttuna fyrir frítt í strætó, hærri námslánum og fyrirhugaðan samstöðufund námsmanna verður rætt á næsta Stúdentaráðsfundi sem fram fer 10. júní kl. 17 í HT300. Athygli stúdenta er vakin á því að fundir ráðsins eru opnir öllum! 

Viðburðir

Maður vikunnar

Helgi Möller Hugbúnaðarsérfræðingur er maður vikunnar

Maður vikunnar

Vinnur við forritun á Uglunni