Háskóli Íslands student.is

Stúdent.is

Stúdent.is

Hvað finnst þér best við íslenska sumarið?

Maddalena Tovazzi á 2. ári í ensku: Ætli það sé ekki hvað sumarið er bjart. Mér líkar líka vel við veðrið hérna, það er ekki of heitt.
Auður Kamma Einarsdóttir starfsmaður í Háskóla Íslands: Það er frekar hressandi veður hérna á Íslandi! Það er samt ansi gaman hvað sumarið er bjart, ég verð að segja það.
Freyr Björnsson á 3. ári í félagsfræði: Íslenska sumarið er svo passlegt.

Ætlar þú að kíkja við rannsóknarskýrslu ráðstefnu HÍ?

Eva Eiríksdóttir nemi í ferðamálafræði: Nei, er í prófum
Helga Ingibjörg Guðjónsdóttir nemi í ferðamálafræði: Nei því miður kemst ég ekki vegna prófum.
Juan Serrano mastersnemi í íslensku bókmenntafræði: Nei ég ætla ekki að fara, ég er of upptekin, en mér finnst þetta rosalega áhugavert efni.

Lýkur BA-gráðu á áttræðisaldri

Haraldur Ólafsson mannfræðiprófessor lýkur BA-gráðu sinni í frönsku nú í febrúar. Blaðamaður student.is ræddi við Harald um þennan áfanga.


5:13:00 minutes (4.77 MB)

Aukid álag á kennurum í HÍ?

Með niðurskurði í Háskóla Íslands hafa fleiri nemendur bæst á hvern kennara. Þegar ljóst var í haust að háskólinn þyrfti að skera verulega niður var ákveðið að standa vörð um rannsóknir og reyna að hagræða í kennslu. Student.is hitti því Guðrúnu Geirsdóttur, dósent í kennslufræði á menntavísindasviði, og spurði hana hvaða áhrif þetta hefði haft á kennara, og hvort kennsluálagið hefði á einhvern hátt aukist.


2:00.5 minutes (1.78 MB)

Ljósabekkir og lýðræði

Heitar umræður og skoðanaskipti spunnust meðal viðmælenda Háskólaumræðunnar þessa vikuna. Þjóðaratkvæðisgreiðslur framtíðarinnar, Tanorexíufélagið og brúnkufíkn unglinga voru meðal þeirra. Stjórnandi umræðunnar þessa vikuna var Árný Elínborg en hún fékk til sín Eirík Jónsson lektor í lögfræði, Sigrúnu Gísladóttur laganema og fulltrúa nemenda í Háskólaráði og Stefán Sigurbjörnsson stjórnmálafræðinema og oddvita Skrökvu í Stúdentaráði.


47:23 minutes (43.38 MB)

Sagan sögð í kínverskum tónum

Kínversk tónlist verður í forgrunni menningarviðburðar sem haldinn verður fimmtudaginn næstkomandi. En þá hyggst Arnþór Helgason, formaður Kínversk-íslenska menningarfélagsins, fjalla um kínverska tónlistarsögu. Til þess að kynna söguna mun hann spila fyrir áhorfendur ýmis framandi tóndæmi. Viðburðurinn verður haldinn klukkan 12 í Gimli, Háskóla Íslands.


1:23 minutes (1.33 MB)

Viðburðir

Maður vikunnar

Helgi Möller Hugbúnaðarsérfræðingur er maður vikunnar

Maður vikunnar

Vinnur við forritun á Uglunni